Refund policy

Skilafrestur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi og í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er veitt að fullu eða afhending á sambærilegri vöru óski kaupandi eftir því innan 14 daga.  

Skilaréttur
Framvísun reiknings eru skilyrði fyrir vöruskilum.
Eftir að kaupandi hefur móttekið vöru er hann hvattur til að yfirfara vöruna og ganga úr skugga um að reikningur sé í samræmi við pöntun. Viðskiptavinur hefur rétt á að skila ógallaðri vöru í allt að 14 daga frá því að viðskiptavinur veitti vörunni viðtöku og fá hana að fullu endurgreidda. Endurgreiðsla vegna vöruskila nær aðeins til sjálfs vöruverðsins en annar kostnaður, svo sem vegna flutnings til eða frá kaupanda, er á ábyrgð kaupanda.

Við vöruskil gilda eftirfarandi skilyrði:

Að varan sé í fullkomnu lagi
Að varan sé ónotuð
Að varan sé í óuppteknum upprunalegum umbúðum

Díva metur söluhæfi skilavöru og áskilur sér rétt til að hafna vöruskilum.

Upphæð vöru er ávallt endurgreidd inn á þann greiðslumiðil sem notaður var við kaupin.

Útsöluvörur og sérpantanir falla ekki undir skilarétt.

Gölluð vara
Ef kaupandi telur sig hafa fengið afhenta gallaða vöru ber honum að tilkynna það með því að senda tilkynningu þess efnis á netfangið: diva@diva.is um leið og vart er við galla. Að öðrum kosti getur kaupandi glatað rétti sínum til endurgreiðslu. Sýna þarf kvittun til staðfestingar að vara hafi verið keypt í Díva. Gölluð vara er endurgreidd eða annað eintak af sömu vöru afhent kaupanda.

 


 

© 2026 Díva, Powered by Shopify

      Login

      Forgot your password?

      Don't have an account yet?
      Create account