Terms of service

Neðangreindir skilmálar gilda fyrir Díva ehf. Vinsamlegast kynntu þér þá vandlega áður en þú pantar vörur á www.diva.is. Díva áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum án fyrirvara. Öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um prentvillur. Allar upplýsingar á diva.is, þ.m.t. birgðastaða og verð eru birt með fyrirvara um villur. Díva áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, breyta verði eða afhendingartíma sem og hætta sölu á vöru fyrirvaralaust. 

Netverð: Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. 

Greiðsla: Kredit- eða debetkort: Greiðsla fer fram á sama tíma og kaupandi skráir kaup sín. Greiðsla með kreditkorti fer fram í gegnum örugga greiðslugátt sem kaupanda er beint sjálfkrafa til þegar hann fyllir út greiðsluupplýsingar. Þegar kaupandi staðfestir upplýsingarnar er greiðslan skuldfærð af kortinu.

Netgíró: Kaupandi samþykkir að nota þjónustu Netgíró. Einnig er hægt að nýta sér raðgreiðslur með Netgíró. Frekari upplýsingar um virkni þjónustunnar má finna á netgiro.is.

Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Footer image

© 2026 Díva, Powered by Shopify